*•.° -Komnar til að djamma ekki kúra!

15.05.2008 21:13:35 / Særún

BONANZZZZA

Sumarið '07  =  BEST Í HEIMI :D




    

    

    

    

    

    

Endurtaka þetta núna?? :D



» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 03:09:13 / Ása

Reglurnar 11 um lífið ;D

1.     Lífið er ekki réttlátt, reyndu að venjast því.
2. Veröldinni er sama um þitt sjálfsálit. Allir ætlast til að þú áorkir einhverju áður en þú ferð að vera ánægð/ur með sjálfa/n þig.
3. Þú munt ekki þéna 4 milljónir á ári strax þegar þú útskrifast úr skóla og þú verður ekki framkvæmdastjóri fyrr en þú hefur unnið fyrir því.
4. Ef þér finnst kennarinn þinn strangur og erfiður, bíddu þangað til að þú færð yfirmann.
5. Að snúa hamborgurum á skyndibitastað er ekki fyrir neðan þína virðingu. Amma þín og afi áttu til annað orð yfir það að snúa hamborgurum.
           
 Þau kölluðu það TÆKIFÆRI.
6. Ef þú klúðrar, þá er það ekki foreldrum þínum að kenna svo hættu að væla og lærðu af mistökunum.
7. Áður en þú fæddist þá voru foreldrar þínir ekki svona leiðinleg eins og þau eru núna. Þau urðu svona eftir að hafa borgað fyrir uppeldi þitt, þvo fötin þín, þrífa til draslið eftir þig og hlusta á hvað þú ert COOL og þau eru hallærinsleg. Svo áður en þú og vinir þínir bjarga regnskógunum og leysið heimsmálin, reyndu þá að taka til og koma reglu á herbergið þitt.
8. Það getur vel verið að skólinn útskrifi bæði sigurvegara og tapara en lífið gerir það EKKI. Í sumum skólum er hægt að taka sama prófið aftur og aftur. Þannig er þetta ekki úti í atvinnulífinu.
9. Lífið skiptist ekki í annir og þú munt ekki hafa frí öll sumur. Mjög fáir samstarfsmenn munu hafa áhuga á að hjálpa þér að finna sjálfan þig. Gerðu það í þínum eigin tíma !
10.  Sjónvarpið er ekki raunveruleikinn. Í raunveru-leikanum þarf fólk í alvörunni að yfirgefa kaffihúsið og fara í vinnuna.
11. Vertu NICE við nördana í skólanum, það endar mjög líklega með því að þú þarft að vinna hjá einhverjum þeirra
Hva segiði er einhvað til í þessu? ;) hehe
 
En jáh stelpur spurning er þessi síða eitthvað að gera sig?  Málið að slúta þessu? =/ =)
En jah djamm á morgun!!!! =D

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 21:09:27 / Ísabel

Jááááá!

Jææææja stelpur!

ein spurning!

ætlum við að láta þessa síðu deyja eða eigum við að reyna að rífa hana upp? ;) og hverjar ætla þá að vera áfram í henni og stunda að blogga og svo fara að henda inn myndum og slúðri og svona? :D Perruballið,85 ballið og svona frammundan!

En jæjja!

LEITER! ;*

Fokkin heita alien ísabel kveður! :haha: :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 17:38:51 / Inga

Ásaaa!

 

Ég var búin að gera massa afmælisblogg hérna í gær sem datt út þegar ég ætlaði að savea það vegna þess að bllog.central var lokað í nokkra klukkutíma í gær.. böggandi drasl! En allaveganna ætla að henda inn afmæliskveðju núna til stelpunar ;)

Ása Dís

aka Napkinhead//Njallen

 Til hamingju með afmælið ! ;*

19 ára pige 24.okt 2007 !
Þín vinkona. Ingveldur svensen!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 16:44:24 / Inga

Afmælisblogg jáa!

 

Jæææja ég var að skoða þessa síðu hérna og fattaði að það var enginn að gera sér tíma til að blogga afmælisblogg handa henni Ísabel okkar.. hvað er málið með það? ég vil nú samt meina að ég, Ale og Særún séum afsakaðar vegna skorts á tölvusambandi um helgina.. Ale og Særún að gimpast upp í bústað og ég á Akureyri að þjálfa!.. En ætla allaveganna að skella inn smá afmæliskveðju til stelpunar.. betra er seint en aldrei vil ég meina ;)

Ísabel Petra Nikulásd.

 

Stúlkan fæddist þann 13.október árið 1990.. og samkvæmt því er hún orðin 17 ára :D Eitthvern vegin efast ég um að hún sé að fara að fá bilprófið sitt bráðum enda ekkert byrjuð að æfa og Sammi er semi einkabílstjórinn hennar haha ;) En þetta kemur allt saman með kalda vatninu hjá henni..

Þín vinkona Ingrid Svensen

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 11:46:46 / Ale

Komin tími á blogg !!

[NP; Believe // The Bravery ]

I am hiding from some beast
But the beast was always here
Watching without eyes
Because the beast is just my fear
That I am just nothing
Now its just what I've become
What am I waiting for
Its already done

Jááá og jæja.. var komin með alveg massað blogg hérna í gær.. búin að setja það inn og læti en það varð víst misskilningur milli mín og Ingu svo að það fór til fjandans.. ég var í of vondu skapi til að skrifa það aftur.. var bara emokid og fór að sofa klukkan hálf fimm um daginn og vaknaði aftur hálf 12.. veit ekki alveg hvað það var.. ætlaði mér að klára sögufyrirlestur.. er svo flottur auli að það er magnað.. Anyways.. ætla að láta að reyna á eitt stykki blogg aftur.. þar sem það þarf nú aðeins að lífga við þessa blessuðu síðu, þar sem hún stefnir klárlega í glötun !!

Það hefur nú margt gerst undanfarna daga.. margt sem stendur upp úr..

Kannski best að byrja að segja frá því að ég átti afmæli um daginn og mér var bannað að skipuleggja afmælispartý.. það voru einhverjir naggar sem ákváðu að taka málin í sínar hendur.. Það eina sem ég þurfti að sjá um var að vera tilbúin klukkan 19, laugardaginn 29.sept.. og var ég þá sótt af Ingu og Særúnu og fékk jakka á höfuðið og var lagt af stað í óvissuna.. Á miðri leið joinaði okkur leynigestur sem var engin önnur en hún Fjóla Hrund.. takk fyrir að koma;* Svo komum við loks á leiðarenda og mætti ég inn í húsið hennar Ásu þar sem stelpurnar voru búnar að að skreyta húsið og baka köku og læti.. Við skelltum í okkur mat og kökum og að sjálfsögðu áfengi.. svo byrjaði fullt af fólki að streyma inn í húsið sem ég vissi ekkert af.. þar sem stelpurnar voru búnar að plana massa partý fyrir mig.. Allir mjööög hressir.. ég fæ þó verðlaun fyrir messta hressleikan.. stútaði 10% Faxe bjór í trekt og lognaðist útaf skömmu eftir það..  sem sagt 20 min í 12 og ég átti akkúrat afmæli á miðnætti.. dó sem sagt í minni eigin afmælisveilsu FLOTT !! Vil samt þakka aftur fyrir mig stelpur.. þetta var mér mikils virði;*

****

Daginn eftir vaknaði ég furðulega fersk á því og lagði í það að sækja stelpurnar sem voru á víð og dreif um bæinn.. En við vorum einmitt búnar að plana ferð í river rafting.. þetta hafðist einhvern vegin og var það svo að ég, Ása, Inga, Særún og Anna brunuðum á Drumboddsstaði þar sem meiningin var að skella sér í River Rafting.. allar náttúrulega fáranlega ferskar.. Illa frískandi að hoppa út í Hvítá í þynnkunni.. sumar voru þó meira þunnar en aðrar.. Við skemmtum okkur ekkert smá vel og vorum duglegar að koma með skotin hægri vinstri á Særúnu.. það voru einhverjir gaurar frá Tölvulistanum sem voru á hinum bátunum og voru duglegir að skvetta á okkur.. ég er ekki frá því að gædinn okkar veit alveg slatta af hlutum af Særúnu eftir þessa ferð.. Svo tók við akstur heim og vorum ég og Ása þar í essinu okkar að syngja meðan þynnkudruslurnar aftur í rotuðust.. þegar heim var komið var ekki annað í myndinni en að gúffa í sig þynnkumat og varð því Pizza Hut fyrir valinu.. nææs.. Ein af bestu helgum sem hafa verið á þessu ári.. klááárlega !

Svo verð ég nú að segja frá því að við tókum okkur nokkrar saman hérna í FÁ og kepptum í Vetrabikarnum.. við vorum ekkert minni menn en strákarnir og splæstum á okkur þessum helvíti töff búningum.. og skoruðum mark í fyrsta leiknum okkar.. ég tek heiðurinn af því:D haha.. Svo að sjálfsögðu skoruðum við fullt í leikjunum þar á eftir of gott.. BEST !=D

Of svalar !! (vantar samt á myndina)

Var annars að pæla að koma með svona STATUS blogg á okkur stelpunum þar sem að það er nú langt síðan að eitthvað hefur verið skrifað hér inn..

* SÆRÚN // perralicious *

Byrja nú ekki á verri endanum.. Sjálfri Særúnu sem gengur einnig undir nöfnunum perralicious og sleikurinn.. litli perrahözzler hópsins.. ófáir rúntarnir þar sem Særún stundar hözzl í gegnum glugga.. alveg hreint ótrúlega stelpan! Þó eru strákamálin hjá henni róleg þessa dagana.. Hún stundar nám sitt í FÁ og er að fara útskrifast núna í vor.. eftir það stefnir hún á að sækja um í læknisfræði við Háskólann.. ekki amalegt! Svo er hún í nemendaráðið af krafti en hún situr þar í markaðsráði.. Særún sá ljósið um daginn og hefur sagt skilið við Krónuna á Granda og er komin aftur á heimaslóðir.. þar sem hún byrjaði sín fyrstu skref sem kjötstarfsmaður.. mikið rétt.. the one and only.. tata.. Krónan Bíldshöfða og vinnur hún þar nú aðra hvora helgi með uppáhaldinu sínu mér:D Særún er að fara í bústaðarferð í vetrarfríinu sínu og viku seinna mun hún ásamt fríðu föruneyti verzlópía skella sér í verslunarferð til Danmerkur.. vona ég þó að hún fari nú að passa sig og versli ekki svona rusl sem hún felur inni í skáp heima hjá sér.. haha.. Særúnu finnur þú þessa dagana að vinna í Krónunni, rúntandi, tana sig í drasl, úti í náttúrunni, í sleik, með dólgslæti ásamt Ingu niðrí bæ, skólanum eða þá heima hjá sér að gimpast..

* INGA // truckalicious (sorry:*) *

Þá er það komið af nagginum henni Ingu en gengur þó ósjaldan undir nafninu Truckalicious þó svo að það sé ekki í miklu uppáhaldi hjá stúlkukindinni þá hefur það semí fest við hana.. Hún er nú einu sinni manneskjan sem hefur lent í ófáum gannislögum hér yfir árið við unga saklausa pilta á djamminu.. gaman af þessu.. Inga okkar stundar nám í Menntaskólanum við Sund af krafti.. samhliða því er hún að gera góða hluti í handboltanum og æfir hún hjá Fylki.. Inga vinnur af og til sem skúringatæknimeistari í fyrirtæki foreldra sinna svo að hún hafi nú eitthvað klink í buddunni.. fyrir áfengi!? nei ég bara spyr.. Inga er akkúrat manneskjan sem tjáði okkur um það í byrjun september að nú yrði hún edrú fram að gamlárs.. það plan fór því miður í vaskinn helgina eftir að hún tjáði okkur um þetta mál.. Og hefur hún verið best í því að stunda djammið af okkur stelpunum haha kjánaprik !! Spurning að hún taki við titlinum sem ég eignaði mér eftirminnilega á bíladögum hér fyrr á árinu.. Partýanimal!?... maður spyr sig:D Inga er þó róleg í strákamálunum þessa dagana og ætlar að einblína sér að náminu og handboltanum.. Ingu finnur þú í Fylki á æfingu, að djamma, skólanum, skúringatæknimeistarast í Súðavogi, læra eða þá að hitta meistara Thai í vogahverfinu og skuttla honum að bílnum sínum;D

* ÁSA DÍS // napkinhead *

Litla stelpan með servíettu hjartað.. sjálf Napkinhead !! ójá.. Sú unga stúlka hefur sagt skilið við Iðnó sem hún var ekki nógu sátt með og liggur leið hennar því í FÁ eftir áramót.. ég segi að hún eigi eftir að finna sig þar í kringum okkur hina naggana.. Apótekinu hefur verið selt til nýrra eiganda og er stelpan því líka atvinnulaus þessa stundina.. Hún er þó að vinna við það að finna vinnu þessa dagana ásamt Mími sínum.. Um daginn var Ása hármódel og fékk alveg sjúklega flotta klippingu og fjólublátt og bleikt hár sem kom fáranlega vel út.. Ása sést annars lítið þessa dagana en hún er víst farin að stunda póker ásamt Mími á félögum.. Við vonum þó að hún fari að sýna meira af sér á næstunni þar sem folinn á nú einu sinni afmæli þann 24.október og verður án efa gert eitthvað sniðugt þá.. Ása ætlar að byrja að stunda ræktina aftur á fullu og er stefnan sett á Baðhúsið.. Ég segi að það sé skyldumæting fyrir hana á Peruball FÁ svo til að hita upp fyrir komandi önn.. Ásu finnur þú heima hjá Mími, að leita sér af vinnu, spila póker með strákunum, kaupa sér ís eða að rúnta !

* ANNA SÓLEY // booty *

Anna Sóley einnig þekkt sem Booty.. er þessa stundina stödd í Skotlandi þar sem hún dvelur hjá ungum pilti og tjáði hún mér það að hún væri að tana sig og djamma:D haha.. En hún á þetta frí fullskilið stelpan.. vona að þú komir endurnærð heim ! Hún stundar nám sitt í FÁ eins og við flest allar.. hún hefur sagt skilið við Krónuna og er búin að færa sig yfir á Pizza companyið.. Hún er svo loksins komin aftur í fótboltan eftir meiðsli og vona ég nú fyrir hennar hönd að hún haldist þar núna í einhvern tíma án þess að meiða sig .. Anna verður í Skotlandi fram á fimmtudag og kemur sér svo beint á djammið á föstudaginn þar sem leið hennar liggur á Broadway á Dirty South.. dugleg í djamminu stelpan ! Anna var ásamt Ásu hármódel um daginn og fékk stúlkan topp og grænan lokk sem hún var nú heldur betur ekki sátt við.. hann er þó horfin á brott.. sem betur fer haha:D Þú finnur Önnu rúntandi um á bílnum sínum (Booty), í ræktinni, á æfingu, í vesturbæjarísbúð, Hlíðunum, djamma eða skólanum..

* EYRÚN // Rúnkalicious *

Eyrún okkar Rúnkalicious sést semí lítið þessa dagana líka.. nema að sjálfsögðu í skólanum FÁ.. en orð götunnar segja að það gæti tengst fola sem Eyrún er að hitta.. fjúddífjú ! Eyrún vinnur með skólanum í Heimamynd og heyrði ég að hún ætlaði að fara stunda Baðhúsið af krafti með þessu öllu saman.. Eyrún var líka hármódel um daginn líkt og stelpunnar.. þó aðeins fyrr og er hún komin með mjöög sítt hár.. Eyrún er þæg en inni á milli stundar hún djammið:D Spurning hvað hún ætlar að bralla í vetrarfríinu sínu.. Viljum fara að sjá meira af þér takk !! Þú getur fundið Eyrúnu í skólanum, með fola?, Heimamynd, að sýna hundana sína eða þá heima hjá sér í Vogahverfinu !

* ÍSABEL PETRA // Icy *

Ísabel eða Icy.. Ísuflakið okkar.. Sá naggur stundar FÁ með prýði inn á milli veikinda en hún náði að næla sér í svæsna kossageit en er nú að jafna sig á þessu öllu saman.. Hún vinnur á Krónunni Granda 2 virka daga og aðra hvora helgi.. stutt fyrir hana að mæta í vinnuna þá daga þar sem þetta er örstutt frá heimili Samma en Ísa og Sammi byrjuðu aftur saman eftir endalaust mikin misskilning í sumar og hafa þau aldrei verið hamingjusamari.. Ísuflakið hefur verið rólegt eftir sameiningu þeirra skötuhjúa og því stundað djammið illa.. Hún mun gera eitthvað skemmtilegt í vetrarfríinu þar sem hún mun eiga afmæli þann 13.október og verður 17 ára þá !! Ísa er mikið fyrir kúr þessa dagana og velur það fram yfir rúntana.. Hún ætlar alveg eins og nokkrar hér í hópnum að skella sér í Baðhúsið á næstunni.. Ísu getur þú fundið heima hjá sér í tölvunni, heima hjá Sammie, á rúntinum með Samma, tana sig í drasl, skólanum, kúra með Smala eða rúnta með stelpunum:D

* ALE // gingerale *

Inga skrifar:

Hún Ale okkar er ný skriðin upp í 19 árin og gerði það með stæl eins og hún sjálf sagði frá hér að ofan.. Ég vil endilega stinga upp á nýju mottói fyrir þetta næsta ár sitt sem hún er að starta en það er ''komin til að djamma ekki deyja'' vegna þess að naggurinn er búin að deyja ansi oft á seinustu mánuðum.. bíladagar, Miklatún og svo sjálft afmælið! Ale mín þú þarft að fara að taka þig á í þessu ;D Fyrir utan þennan reglulega dauða sinn þá er stelpan alveg að standa sig ágætlega í djamminu.. það fer eimmitt að sigla í eitt stórt sveitt djamm hjá henni þessa helgina en ferð hennar er heitið upp í bústað með nemó.. spurning hvort að það stefni í dauða?.. Hún Alexandra er annas að gera góða hluti í Fá hvort sem er litið á námið eða félagslífið en er það eimmitt hún sem stjórnar öllu þar með harðri hendi.. við erum að tala um sjálfan formanninn! Gimpið er að fara að byrja í Baðhúsinu með stelpunum en gymið hefur fengið að sitja á hillunni vegna bakmeiðsla.. vonandi fara ferðinar til sjúkraþjálfara að skila sér! Hana Ale finnur þú inn á nemó, hlaupandi með flakkarann sinn út um allan skólann að þefa upp þáttaraðir, að horfa á þáttaraðinar sínar, á fundum, djamminu, dauða eitthverstaðar, tana og á rúntinum en þar klikkar hún seint!

Ég læt þetta gott heita og vil fá komment folar !!

Gingerale !!


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 17:02:42 / Ísabel

Til Hamingju með ammó lúði! ;*

Jæææja!

Afmæææælis blogg handa Ale :D

Með prinsessu kórónu auðvitað! ;)

Til Hamingju með 19 árin gimpið þitt og já býst við því að þú sért búin að eiga góðan dag samt maske svona smá þynnka líka? ;).. haha en jæjja smá afmælis söngur hérna!

Hún á afmæli í dag

hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún Ale!

hún er 19 ára í dag!

Víjúvíííj!

Þín bestastalangbestasta SYSTIR! viðurkenndu það bara!

Ísabel Petra :haha::haha::haha::haha:


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 14:03:00 / Ale

ATH!!!

Nei Inga mín ég er ekki að fara að blogga um dólgslæti þín og Særúnar síðastliðin föstudag! hehe

A.T.H!!

Tími komin á að við endurtökum leikin þar sem þetta var snilld í sumar og eru endalaust til af myndum frá því að við skelltum okkur í sumar og endalaust mikið af einkahúmor sem myndaðist.. Ætla láta með fyrirvara svo allir geti séð sér fært að mæta!

FÓTBOLTI á MIKLATÚNI

MIÐVIKUDAGINN 26.SEPT!

Brunettes

Blondes

*

*

*

*

Viljum sjá fleiri mæta;D


» 17 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 21:11:04 / Inga

Bloggi!

[Np; Matchbox Twenty/How Far We've Come]

I’m waking up at the start of the end of the world
But it's feeling just like every other morning before
Now I wonder what my life is going to mean if it's gone

The cars are moving like a half a mile an hour and I
Started staring at the passengers who're waving goodbye
Can you tell me what was ever really special about me all this time?
  

Fyrir 2 vikum þá gaf ég út þá yfirlýsingu að ég væri komin í laaaangt drykkjubindindi og var að spá í að drekka næst kannski um áramótin vegna annríkis í Handboltanum! Ég féll eftir rúma viku og er núna búin að drekka 2x síðan.. held að ég eigi eitthvað bágt! En svona for real núna er ég komin í pásuna mína.. veit ekki hversu lengi hún á eftir að endast en vonandi sem lengst :D.. Annas verður Gurrý ekki sátt!

Busunin í Ms og Busaballið var síðastliðinn fimmtudag! Busunin ekki upp á marga fiska allt honum Má Rektori að þakka ;) Ennn aftur á móti þá fannst mér geggjað á Busaballinu! Fyrir ballið sá ég um það að halda fyrirpartý fyrir 2 bekki.. 2-R og 2-S! verð að viðurkenna að 1-H er smá saknað.. Partýið heppnaðist vel framan að eða þanga til klukkan var rúmlega 10 þá fór að týnast inn fólk úr öllum áttum.. veit ekki hvað var málið með það! Eitthverjum snillingi tókst að kveikja á þjófavarnakerfinu og þá tók ég snappið á þetta og rak alla út hehe:lol:.. Ballið var svo haldið á Gullhömrum og héldu Á Móti Sól stemmaranum vel uppi! Ég var þar límd upp við sviðið syngjandi eins og fáviti :haha:

Ég er búin að skella inn myndunum sem ég tók.. þær eru væntanlegar fleiri frá stelpunum;)

Dansiballið!! :D

Á föstudaginn vaknaði ég svo svona helvíti hress eldsnemma og fór að taka til í húsinu og skellti mér svo í skólann fersk!.. Við vorum nokkur sem höfðum það í okkur að vera þennan dag í skólanum og sumir sem kannski hefðu frekar átt að vera heima hjá sér;).. Hvíta Ninjan?.. Svo þegar skólinn var búinn tók við meistaraflokksæfing og svo auka skotæfing beint á eftir henni! Ég kom sjálfri mér á óvart og var bara hress:D.. um kvöldið skutlaði ég Ale og Særúnu á djammið og hitti svo Önnu og Hönnu í smá spjalli ;)

Laugardagurinn fór svo bara í handboltann! vorum að spila í undankeppni íslandsmótsinns í unglingaflokki ;).. tókum þetta auðvitað í bossann!! Um kvöldið var svo planið að kíkja bara edrú niður i bæ með Særúnu og Ale en það breyttist eitthvað á seinustu stundu og byrjuðum við að hella í okkur um 11 leitið.. hehe:lol: Ég og Særún viljum halda því fram að rauði ógeðisdrykkurinn okkar hafi haft slææææm áhrif á okkur.. Vodki og berjasafi blandaður 50/50.. mæli ekki með því!! Vorum í ruglinu þarna báðar tvær og Ale greyjið að reyna að hafa hemil á okkur.. sorrý Ale! En Jáhm ég get ekki mikið sagt frá þessari ferð okkar í bæinn því að minnið er eitthvað ekki að vinna með mér í þeim málunum.. held allaveganna að það hafi verið gaman! :lol:

hahaha sveittar Fylkisstelpur!

Gærdagurinn fór í þynnku!!!! Vá var ónýt þennan daginn sko.. var að vinna á fótboltaleik upp í Fylki með Sunnefu, Önnu Sif og Hrefnu! Mér hefur sjaldan verið eins kalt og akkurat þarna.. þurftum að hanga þarna úti í ískulda að rífa miða og telja hversu margir koma inn.. skítþunnar og sætar!;) Svo fór ég beint í kjötsúpu til hennar Ömmu gömlu.. mmm! :D Þynnkudruslan skellti sér svo í háttinn snemma.. 

Er að pæla í að fara að setja punktinn á þetta blogg mitt.. hef frá voða litlu merkilegu að segja.. geri ekki mikið annað þessa daganna en að fara í skólann, æfingu, sofa, læra, keppa og meira sofa! Hef valla orðið tíma til þess að hitta vini mína.. Ætla að sækja um lenginu á sólarhringnum!.. en nóg af bullinu í mér! Leiter ;*

Ingaaaa!

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 13:14:50 / AnnaSóley

bústaður !

vil fá komment frá þeim sem ætla með í bústaðarferiðna 5.okt... ariiiight ;D

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 18:44:11 / Ísabel

Love stoned lalalala! (8)

 [Np; Justin Timberlake/Love Stoned I Think She Knows Tiesto Remix]

Those flashing lights come from everywhere
The way they hit her I have to stop and stare
She’s got me LoveStoned
I think I’m LoveStoned
She’s got me LoveStoned
I think that she knows!

Blelli ísa hér! ;) ætla að blogga eitthvað smá þar sem ég hef ekki bloggað alveg frekar lengi held ég barasta! En já þá erum við aftur orðnar 7 í þessari síðu og hafa hinar snúið sér aftur að sensation síðunni! jamjam :)

En jááám atla bara að byrja að segja frá Miðvikudeginum! :haha: hann byrjaði á snilldar busum haha og var ég með stelpunum á grillinu að grilla Púlsur fyrir busana! :D en haha það var of fyndið að sjá alla í búningunum haha og var Frikki oooof fyndinn með þessa fáranlegu hárkollu! :lol: en já þetta var bara of gaman! en svo var skellt sér heim hoppað í sturtu og tekið því rólega! svo var bara reynt að finna eitthver föt og skellt á sig andlitinu og Anna og Eyrún komu svo og pikkuðu mig upp á Booty! ;)

Nokkrar myndir úr busuninni! ;) fleiri á www.faviti.is :D

Svo fórum við að sækja Evukareni;* og skelltum okkur svo til Elínar og seinna meir joinaði Ása og við fengum okkur pizzu og svo var bara farið að hella í sig sem gekk misvel! haha allavegana var ég ekki mikið fyrir drykkjuna þetta kvöldið ;) veik og svona gaman! en svo var bara farið í salapartýið og því var slúttað frekar snemma af löggiman! great :whut: en svo fóru bara allir á ballið og var dansað af sér rassinn! geggjuð tónlist og bara sjúklega gaman að mínu mati nema hefði viljað vera ekki veik og með hægri löppina bólgna eftir að svona allir voru búnir að traðka á henni haha! :D en já svo eftir ballið komum við út og röddin mín eilega bara farin! og svo var bara skellt sér heim og kúrt og tekin veikindadagur á þetta á Fimmtudaginn! :D

Hmm á Föstudaginn var það svo bara skóli,tan,sturta,lúllað og svo kom Sammi að sækjamig og við já vorum bara eitthvað að rúnta og skelltum okkur svo útá nes til Jóa og jaaam svo bara seinna meir heim að kúra! ég er eitthvað virkilega slöpp þessa dagana haha! :P :haha: en já svo í gær semsagt Laugardaginn var ég bara heima svo kom Inga um kvöldið og við leigðum Dvd og kauptum nammi  :haha: ooog svo fór hún heim því hún þurftað keppa í morgun! og Sammi kom til mín og svooo fór hann þá bara Lúlli! ;)

Já svo er ég ekkert búin að gera í dag eilega! og það er svo bara Bíó í kvöld með Ale,Ásu,Ingu og Særúni! :) En ég blogga skárri blogg seinna ! :haha:

Leiter á ykkur!  8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 01:20:50 / Ale

tatatat!

[NP; Your legs grow // Nada Surf ]

If you were here
baby we'd increase the dose
there was no fear
in my room when we got close
call me anytime you've got a ghost

 

Eeeelska Nada Surf.. klárlega best!

Var svona alvaralega farin að hugsa að taka að mér næsta blogg þar sem við erum klárlega ekki að standa okkur í þessu.. seinasta blogg 28.ágúst hvað er það!?!

Allavegana skólinn kominn svona semí á fullt.. búnar 2 vikur af honum rúmlega og ég og Særún ekki búnar að hafa neinn tíma til að tjilla með ykkur stelpunum í skólanum.. en þetta breytist nú eftir að busaballið og allt það er afstaðið..

Er ekki búin að gera annað seinustu daga nema vinna, sofa og gera eitthvað fyrir nemendaráð.. Við Særún skelltum okkur akkúrat í busaferðina seinasta fimmtudag og föstudag og var hún snilld.. ég segi að við söfnum okkur fullt af fólki og förum í hermannaleikinn í Heiðmörk helst í rigningu.. þetta var ooof gaman! ég var eins og lítill krakki í nammibúð haha..

Svo er bara útivistardagur á miðvikudaginn og ball seinna um kvöldið.. sem allir ætla að mæta á af því að FÁ böll eru náttúrulega best.. veit að stepurnar eru sammála um þetta.. Haldið á Gauk á stöng og eru Buff og Dj Danni Deluxe að spila.. við eigum svo eftir að missa okkur á dansgólfinu vijjj:D

En hvernig er þetta með bústaðinn??.. ég er að digga bústað helgina sem ég á afmæli það væri vangefið gaman:D

Eeeen held að ég bitrasta manneskja í heimi akkúrat núna sem á bilaða tölvu, ónýtan síma og næstum skemmdan bíl eftir að það var klesst á mig farin að sofa mjöög bitur.. eins gott að þetta ball verði snilld annars gerist ég emo og lita hárið mitt kolsvart.. mihhh

Kormáksmyndin góða!

Alee;*

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 12:51:08 / AnnaSóley

Robery komin heim ;D

mér leiðist svo svaaaakalega hérna í íslensku tíma að ég ætla bara að henda inn einu stuttu bloggi:)

jáá.. í gær eða reyndar í nótt, fór ég með HönnuDís og Stulla útá flugvöll að sækja ErnuRán sem var að koma heim frá Mallorka =D  Og það var ekkert smá gaman að sjá hana Robery aftur.. orðin heel tönuð en hún vill meina að hún sé ekkert brún? hah.. held að hún sé litblind ='D Taskan hennar kom reyndar ekki með henni? ábyggilega ennþá útá Mallorka en vonum bara að hún skili sér því kellan náði nú að versla e-ð ;D

En svo er busaball FÁ á næsta leiti.. það verður 5.sept og það er SKYLDUMÆTING:!::haha:
Ale og Særún búnar að vera að redda öllu og ég held að þetta verði skeeeeemmtilegt ball eins og öll FÁ böll !! :D

haha ='D 

jæja.. kannski að maður reyni að fara að læra e-ð :P..

ErnaRán, HannaDís, Gugga, María, ég & Orka =D 

Annie Sunny 


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 12:45:57 / Inga

Skólinn að taka við,,

 

Daginn folar!..

Jæjaa ég ákvað bara að blogga víst það er engin á leiðinni að gera það.. allir svo uppteknir á því að byrja í skólanum á meðan ég heng bara hérna heima að mygla..

Smá pæling í gangi.. sumarið búið!? Erum við að tala um að það hafi liðið allt of hratt!!! enda kannski ekki skrítið því við vorum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt!.. Ég á eftir að sakna sumarsinns í myrkrinu í vetur þó manni langar alveg að byrja í skólanum og svona núna!.. vá sko hef aldrei skemmt mér svona vel á einu sumri!!.. held að fleiri styðja mig í því ;).. Ætla að skella inn smá myndabanka frá sumrinu :D..

Bíladagar!! :D

 

Golfbílsrúntur.. Ísa, Inga, Eyrún! 

 

of50590442666.jpg picture by sarun88

Djamm í Fannafold 207! ;D 

 

P1010014.jpg picture by sarun88

Dorg á Hafnafjarðarbruggju haha ! 

 

Fótbolti á Miklatúni :D 

 

saaaaaaaarun170.jpg picture by sarun88of5059044222.jpg picture by sarun88

Grill hjá Ingu!  

 

 

Fimmtudags djamm heima hjá Önnu Sóley! :D 

 

Flipp í Nautólfsvíkinni ;D 

 

Stelpuchill hjá Ingen.. 

 

Blak í Nautólfsvík og Krump haha :'D 

 

Góðir rúntar ;) 

 

Krónudjammen! 

 

Fámennur fótbolti á Miklatúni!:D 

 

pof50590442.jpg picture by sarun88pppof50590442.jpg picture by sarun88ppof50590442.jpg picture by sarun88of505904429999.jpg picture by sarun88

Perralicious..  

 

Sleði upp á Langjökli! 

 

Næturblak í Nautólfsvík ;) 

og nokkrar nettar pósur hérna í lokin ;D 

Það hefur verið frekar rólegt hjá okkur síðustu viku.. flestar komnar í frí í vinnunum sínum nema kannski krónumellunar á Granda.. Ég sjálf búin að vera í sumarfríi seinustu tvær vikur en samt voða lítið frí.. Undirbúningstímabilið í handboltanum að drepa mann og svo er ég búin að vera pungsveitt að flytja allt dótið mitt í nýju íbúðina. systir mín loksinns farin að heiman og ég komin í kjallarann.. illa sátt :D Það fyrsta sem ég gerði var eimmitt að fara í Ikea og versla sérvörur fyrir 18.000 kr hehe:lol:.. Þetta er klárlega nýtt og betra Thai!

keypti svona borð :P

Ég hélt eimmitt Innflutningspartý seinasta laugardag fyrir okkur stelpunar;) Hittumst hérna um 9 leitið og borðuðum pizzu og skellt í sig nokkrum öllurum.. þar að segja þær sem voru að drekka;) Það má segja að medalíur og rör hafi verið að gera góða hluti.. það þarf greynilega ekki mikið til þess að skemmta okkur!.. Svo sáu Hanna og Ale alveg um tónlistina sem var fyrsta flokks.. mikið dansað og sungið! :D Þegar klukkan fór að ganga tvö þá skelltum við okkur niður í bæ.. Fyrst röltum við aðeins um að skoða mannlífið svo enduðum ég, Ale, Anna, Gugga og Særún inni á Prikinu á meðan hinar stelpunar fóru heim;) Fólk greynilega með misgott djammþol.. við enduðumst svo alla nóttina enda var stemmarinn nettur á Prikinu.. Særún stal öllu steini léttara.. tómatdós, Cultdós, heimasímanum á Prikinu og bjórkút.. það var of fyndið að fylgjast með þessum krakka sem já tók líka einn dans fyrir okkur upp á borði.. eða kannski ekki fyrir okkur!? Frekar svona einn sveittann útlending.. þú ert ágæt Særún mín!;) Anna neitaði bara að koma sér heim.. ef það væri ekki fyrir okkur þá væri hún ennþá inn á Prikinu að djamma.. Ég og Ale vorum edrú manneskjunar en skemmtum okkur ekkert minna þrátt fyrir alkahólleysið;) allaveganna eftir að við hættum að hanga eins og grunnskólakrakkar á Lækjatorgi hehe:lol: Svo vil ég endilega minna ykkur á það stelpur mínar að koma í betri skófatnaði næst þegar við förum niður í bæ.. Gugga öll blóðug á fótunum og Eva Karen hætt að gera labbað! Ég segji Crocks á liðið næst!8)

gellunar í ham:D

Særún chillin með eitthverjum dúddum á laugarveginum haha :D

Skólinn byrjar svo á föstudaginn hjá mér :D. get ekki beiðið!

alltaf jafn fallegur..

en er farin að bora í nefið þanga til..

Leiter!

*Ingrid Svensen*

 

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 18:05:09 / AnnaSóley

í skólanum, í skólanum, er skemmtilegt að veeeraaaa...

jæja ja´!! sumarið búið og skólinn að byrja á morgun!! óbojjj...:o:haha:

klááárlega bestur8)

 

en ég ætlaði nú ekki að blogga heldur að heimta að þær sem hafa ekki bloggað.. BLOGGI.. hmm.. Ása, Hanna, Sara, Erna, Eyrún, Eva...  ekki alveg að standa ykkur:lol:

 

takk fyrir mig... Anna out.. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill